Sérstök þjálfun
Það geta verið alls konar ástæður fyrir því að fólk þarf á sérstakri þjálfun eða kennslu að halda þegar kemur að því að aka bíl.
Sum eru hrædd við að keyra í mikilli umferð, önnur eru að koma sér aftur út í umferðina eftir óhöpp eða uppákomur og stundum þarf upprifjun eða kennslu á tæknileg atriði í akstri og umferð.
Ökulag býður upp á fjölbreytta þjálfun fyrir fólk á öllum aldri:
- Akstur í dreifbýli
- Akstur í höfuðborginni
- Aðstoð vegna sviptingar ökuréttinda
- Að fara af sjálfskiptum yfir á beinskiptan bíl
- Að læra á aukabúnað í bíl
- Æfing í að bakka, leggja í stæði
- Endurhæfing eftir slys (jafnvel í samvinnu við sálfræðing og aðra fagaðila)
- Fræðsla um rétta notkun léttra bifhjóla og rafhlaupahjóla