Ökunám
Ökunám er fjölbreytt, krefjandi, skemmtilegt og spennandi – allt í senn.
Mörgum finnst örlítið flókið að átta sig á því hvað námið felur í sér. Hvað þarf að gera áður en námið hefst? Hvernig virkar það í raun og veru? Hvað kostar það? Hvaða námskeið þarf að taka? Og hvenær máttu taka bílpróf? Hér fyrir neðan geturðu kynnt þér allt um ökunámið!
Ökulag býður upp á nám til almennra ökuréttindi í B-flokki.
Allt um ökunám
Þú getur byrjað í ökunámi um leið og þú verður 16 ára. Þegar þú ert eldri en það getur þú hafið nám hvenær sem er!
Ökuskírteini er í fyrsta lagi gefið út á 17 ára afmælisdegi.
Almenn ökuréttindi í B-flokki veita þér rétt til að aka fólks- eða sendibifreið sem er:
- 3.500 kg og léttari
- með sæti fyrir 8 farþega eða færri – auk ökumanns
- með eftirvagn 750 kg eða léttari
- með eftirvagn þyngri en 750 kg, svo lengi sem bifreið og eftirvagn eru ekki þyngri en 4.250 kg samtals
Með almenn ökuréttindi í B-flokki mátt þú líka aka:
- léttu bifhjóli (vespu og skellinöðru)
- bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum (t.d. fjórhjóli)
- torfærutæki (t.d. vélsleða)
- dráttarvél
- vinnuvél í umferð (til að vinna á slíkri vél þarftu hinsvegar vinnuvélaréttindi)
Það er misjafnt hvað ökunám kostar. Sum ná strax góðum tökum á akstrinum á meðan önnur þurfa aðeins fleiri ökutíma til að vera tilbúin í ökuprófið. Athugið að starfsmenntasjóðir stéttarfélaga veita margir hverjir styrki til ökunáms – endilega kynnið ykkur úthlutunarreglur hjá ykkar stéttarfélagi.
Verklegur ökutími (45 mín) hjá Ökulagi:
14.900 kr.
Ökuskóli 1:
13.500 kr. hjá Netökuskólanum, 18.000 kr. með kennslubók (fer eftir ökuskóla)
Ökuskóli 2:
13.500 kr. hjá Netökuskólanum, 18.000 kr. með kennslubók, sama bók og er notuð í ökuskóla 1 (fer eftir ökuskóla).
Ökuskóli 3:
52.000 kr. (heimasíða Ökuskóla 3)
Akstursheimild og bráðabirgðaskírteini:
4.300 kr.
Skrifleg próf hjá Frumherja:
7.090 kr.
Verklegt próf hjá Frumherja:
18.820 kr.
Afnot af kennslubifreið Ökulags í verklegu prófi:
14.900 kr.
Gera má ráð fyrir því að ökunámið með öllum kostnaði sé um 300.000 kr +/-
Hér má finna gjaldskrá Sýslumanna
Hér má finna gjaldskrá Frumherja
Til að hefja ökunám þarft þú að sækja um ökuskírteini (námsheimild) í rafrænu eyðublaði á Ísland.is.
Þar velur þú ökukennara: Hildur Guðjónsdóttir 270982 – þar með tengjumst við saman á rafrænan hátt.
Á þessu stigi þarftu líka að greiða fyrir námsheimildina – hún kostar kr. 4.300. Með þeirri greiðslu ertu líka að borga fyrir ökuskírteinið sem þú færð svo þegar þú hefur lokið námi.
Þegar þú hefur sótt um námsheimildina þarftu að fara á skrifstofu sýslumanns með passamynd á ljósmyndapappír í stærðinni 35×45 mm, með einlitum bakgrunni ásamt því að gefa undirritun. Ljósmyndastofa er beint á móti Sýslumanninum í Kópavogi, þar þarf ekki að bóka tíma.
Athugaðu að ef að einni eða fleiri heilsufarsspurningum er svarað játandi í umsóknarferlinu (t.d. ef þú notar gleraugu) þarf að skila inn læknisvottorði á skrifstofu sýslumanns.
Það er gert í rafrænni ökunámsbók á www.island.is undir Menntun og Ökunám. Þar getur þú fundið upplýsingar um:
- ökuskóla sem þú hefur lokið
- fjölda verklegra ökutíma sem þú hefur lokið
- staðfestingu frá ökukennara á æfingaakstri, sem er forsenda þess að foreldrar eða aðrir geti sótt um að vera leiðbeinendur í æfingaakstri
- niðurstöðu bóklegra og verklegra ökuprófa
Ökunám skiptist í bóklegt og verklegt nám.
- Bóklegt nám fer fram í Ökuskóla 1 og 2
- Verklegt nám fer fram með ökukennara í 17-25 ökutímum, í Ökuskóla 3 og í æfingaakstri með leiðbeinanda.
Það getur verið misjafnt eftir aðstæðum og vali hvers og eins nemanda hvaða ferli hentar best í ökunáminu.
Ég mæli með því að byrja í Ökuskóla 1 eftir 2-4 ökutíma og ljúka honum og Ökuskóla 2 samhliða verklegu námi. Eftir að þú hefur lokið 10 verklegum ökutímum og ökuskóla 1 getur þú farið beint í ökuskóla 3 sem felur í sér verklegt nám í ökugerði. Um svipað leyti getur þú byrjað æfingaakstur með leiðbeinanda.

Ökuskóli 1 og 2 eru bókleg námskeið sem kennd eru í ökuskólum. Námskeiðin fara fram í kennslustofu en það er líka hægt að sitja þau á netinu. Á þeim er farið yfir grundvallaratriði varðandi:
- skilning á umferðinni
- helstu umferðarreglur
- umferðarmerki
- umferðarsálfræði
Ég mæli með Netökuskólanum www.netokuskolinn.is sem að kennir bæði ökuskóla 1 og 2.
Ökuskóli 3 er verklegt námskeið sem fer fram í ökugerði. Þar er líkt er eftir ýmsum varhugaverðum aðstæðum sem geta komið upp í akstri og rétt tviðbrögð kennd. Áður en þú ferð í Ökuskóla 3 þarftu að hafa lokið:
- Ökuskóla 1
- 10 ökutímum
Í Ökuskóla 3 er farið sérstaklega yfir:
- öryggis- og verndarbúnað bifreiða
- áhrif áfengis og annarra vímugjafa á aksturshæfni
- áhrif þreytu á aksturshæfni
Ökuskóli 3 kostar 52.000 kr og skráning á námskeið fer fram hér.
- Eftir að þú hefur lokið a.m.k. 10 ökutímum (450 mín) og bóklega námskeiðinu í Ökuskóla 1 getur þú sótt um heimild til að keyra með leiðbeinanda, öðrum en ökukennara, í æfingaakstri. Ökukennari metur samt líka hvenær þú getur hafið æfingaakstur.
- Þú sækir um æfingaakstur með því að fylla út heimild til æfingaaksturs á island.is. Leyfið sem þú færð gildir í allt að 18 mánuði. Samhliða æfingaakstrinum getur þú farið í verklegt nám í Ökuskóla 3.
- Hér er upplýsingasíða um æfingaakstur
Þegar þú hefur lokið ökunáminu (verklegu námi með ökukennara og Ökuskólum 1, 2 og 3 getur þú farið í bóklegt ökupróf. Taka má bóklegt próf 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdag.
Frumherji annast framkvæmd bóklegra ökuprófa og á vefnum þeirra getur þú pantað tíma í prófið.
Framkvæmd bóklegs prófs
Bóklega prófið er tekið á spjaldtölvur. Prófið samanstendur af 50 fullyrðingum sem svara á rétt eða rangt. Spurt er um efni sem þú hefur lært í ökuskólanum og hjá kennaranum. Niðurstöður úr prófinu færðu strax við próflok. Svara þarf 46 fullyrðingum rétt til að standast prófið.
Hvað ef ég fell í bóklega prófinu?
Ef þú fellur í prófinu getur þú tekið það aftur að viku liðinni. Sama gjald er greitt fyrir hvert próf sem tekið er.
Lespróf
Lespróf eru fyrir þau sem glíma við lestrarerfiðleika.
Túlkapróf
Hægt er að panta túlkuð próf fyrir þau sem hafa önnur tungumál en íslensku að móðurmáli.
Prófreglur
Miklvægt er að kynna sér prófreglur Samgöngustofu og Frumherja.
Þú getur tekið verklegt próf allt að 2 vikum fyrir 17 ára aldur. Ökukennarinn þinn pantar tíma fyrir verklegt próf (en samt ekki fyrr en eftir að þú hefur staðist bóklega prófið) og fylgir þér í prófið sem fer fram á bílnum sem þú hefur lært á hjá ökukennaranum. Verklega prófið skiptist í tvo hluta, annars vegar munnlegt og hins vegar aksturspróf.
Munnlegt próf
Í munnlega prófinu sem tekið er í bílnum áður en lagt er af stað er spurt um ýmislegt sem snertir bílinn sjálfan; ljós í mælaborði, stjórn- og öryggistæki og hluti sem tengjast viðhaldi bílsins.
Aksturspróf
Í akstursprófinu er ekið um ákveðnar prófleiðir. Prófdómari skráir niður plúsa og mínusa og reiknar síðan í lokin stig próftakans. Ef heildarstigatala fer undir 80 hefur próftaki ekki staðist prófið.
Hvað ef ég fell í verklega prófinu?
Ef þú fellur í prófinu getur þú tekið það aftur að viku liðinni. Sama gjald er greitt fyrir hvert próf sem tekið er.
Þegar þú hefur staðist bæði bóklegt og verklegt próf gefur sýslumaður út bráðabirgðaskírteini til þín – en þó ekki fyrr en þú hefur náð 17 ára aldri.
Bráðabirgðaskírteinið gildir í 1-3 ár. Að þeim tíma loknum getur þú sótt um fullnaðarskírteini, en til þess að fá það þarftu að uppfylla ýmis skilyrði og fara í akstursmat hjá ökukennara.
Lestu meira um skilyrði fyrir útgáfu ökuskírteina í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.