Akstursmat

Þegar þú ert búinn að vera með bráðabirgðaskírteini í að minnsta kosti eitt ár þarft þú að fara í akstursmat hjá ökukennara til þess að fá fullnaðarskírteini. Akstursmatið getur farið fram 1-3 árum eftir útgáfu bráðabirgðaskírteinis.

Til þess að geta sótt um fullnaðarskírteini þarft þú að hafa:

  • verið með bráðabirgðaskírteini í að minnsta kosti 1 ár
  • lokið Ökuskóla 3
  • lokið akstursmati
  • fullnægjandi sjón og heyrn
  • líkamlega og andlega hæfni til að stjórna bíl
  • fasta búsetu á Íslandi
  • ekki fengið punkt vegna umferðarlagabrota eða sviptinga síðustu 12 mánuði

Ef bráðabirgðaskírteinið þitt er að renna út og þú ert með punkt vegna umferðarlagabrota eða fullnægir ekki skilyrði að öðru leyti getur þú sótt um endurnýjun á bráðabirgðaskírteininu og fengið annað þriggja ára skírteini.

Hvernig fer akstursmatið fram?

  • Þú mælir þér mót við ökukennara sem að framkvæmir matið.
  • Þú getur komið annað hvort á eigin bíl eða notað bíl ökukennarans. Hann má vera beinskiptur eða sjálfskiptur.
  • Þar lýsir þú fyrir kennaranum mati á eigin aksturshæfni og öryggi í umferðinni.
  • Ökukennari fylgist með akstri þínum og skráir athugasemdir.
  • Að akstri loknum ræðið þið ökukennarinn saman um hvernig gekk og hvað má bæta.
  • Ökukennari sendir rafræna staðfestingu um að akstursmati sé lokið.
  • Akstursmat tekur um það bil 50 mínútur – þar af tekur aksturinn 30 mínútur og 15 mínútur fara í samtal þar sem við ræðum hvernig gekk.

Hvað kostar akstursmatið?

Akstursmat á eigin bíl: 10.000 kr.
Akstursmat á bíl ökukennara: 14.900 kr.