Æfingaakstur

Þegar þú hefur lokið að minnsta kosti 10 verklegum tímum og ökuskóla 1 er hægt að sækja um leyfi til æfingaaksturs. Æfingaakstur er hugsaður sem viðbótaræfing með leiðbeinanda og kemur ekki í stað kennsluaksturs með ökukennara. Í æfingaakstri æfir nemandinn sig í því að aka bíl undir leiðsögn foreldris eða annarra sem uppfylla skilyrði. Eftir æfingaakstur taka aftur við nokkrir tímar hjá ökukennara í undirbúningi fyrir próf.

Allt um æfingaakstur

Þegar þú hefur lokið að minnsta kosti 10 verklegum ökutímum og ökuskóla 1. Það er samt alltaf mitt sem ökukennara að meta hvort og hvenær nemi er tilbúinn til að hefja æfingaakstur.

Einstaklingur (foreldri eða annar aðili) sem er orðinn 24 ára aldri og hefur gild ökuréttindi fyrir B flokk og hefur verið með þau í að minnsta kosti 5 ár. Leiðbeinandinn má ekki hafa verið sviptur ökuréttindum eða refsað fyrir vítaverðan akstur á síðustu 12 mánuðum.

Leiðbeinandinn sækir um hér á www.island.is og fer inn með sínum rafrænu skilríkjum. Leiðbeinandi fer í gegnum umsóknarferlið og uppfylli hann öll skilyrði fær hann samþykki nokkrum mínútum síðar í pósthólfið sitt á Ísland.is. Eftir það er æfingaleyfið komið í gildi og þið getið farið út að keyra með æfingaakstursskilti á bílnum.

Umsókn um æfingaleyfi er ókeypis.

Leyfið gildir í allt að 18 mánuði en þó aldrei lengur en námsheimildin er í gildi. Ef námsheimild rennur út, rennur æfingaleyfið líka út. Þá þarf að sækja um nýja námsheimild hjá sýslumanni. Leiðbeinandi þarf þá líka að sækja um heimild aftur.

Leyfið er gefið út á leiðbeinanda (manneskju) en ekki ákveðinn bíl. Ef að nemi er að læra á beinskiptan bíl má nota bæði beinskiptan og/eða sjálfskiptan bíl í æfingaakstrinum. Ef að nemi er að læra eingöngu á sjálfskiptan bíl þá þarf bíll í æfingaakstri að vera sjálfskiptur. Bíllinn á alltaf að vera merktur með æfingaakstursskilti á meðan nemi keyrir. Ekki þarf að sækja sérstaklega um leyfi fyrir bílinn.

Bíllinn má ekki vera yfir 3.500 kg. að leyfðri heildarþyngd. Heimilt er að tengja eftirvagn/tengitæki allt að 750 kg við bílinn.

Eftir æfingaakstur taka aftur við nokkrir tímar hjá mér í undirbúningi fyrir próf. Samkvæmt námskrá þarf nemandi að hafa lokið 17 verklegum tímum fyrir verklegt ökupróf.

Áður en nemi kemur í bóklegt próf fyrir B réttindi þarf hann að hafa lokið annaðhvort:
Ökuskóla 1, 2 og 3 og 12 ökutímum eða Ökuskóla 1 og 2 og 14 ökutímum. Þetta þarf allt að vera skráð í rafrænu ökunámsbókina.

Þegar þú hefur lokið ökuskóla 1 þá færðu skilti sent frá ökuskólanum þínum eða færð skilti hjá mér. Ef að þú tapar skiltinu skaltu hafa samband við ökuskóla 1 eða mig og við útvegum þér nýtt. Það er líka hægt að kaupa skilti hjá Ökukennarafélaginu í Mjódd www.aka.is

  • Æfingaakstur er viðbótaræfing með leiðbeinanda og kemur ekki í stað kennsluaksturs með ökukennara.
  • Notið kennslubók nemanda úr ökuskóla 1 til að hjálpa ykkur og hafið hana meðferðis í bílnum.
  • Skoðið vel hefti frá ökukennaranum og merkið inn þá þætti sem þið vinnið með og hvernig gengur.
  • Þjálfaðu minnst eina klukkustund á viku. „Æfingin skapar meistarann“.
  • Þjálfaðu nemann vel í að leggja í stæði, aftur á bak og áfram.
  • Byrjaðu í rólegri umferð og færðu þig smátt og smátt í erfiðari aðstæður til að venja bæði þig og ökunemann við mismunandi aðstæður.
  • Þjálfaðu einnig þegar færi er erfitt vegna hálku eða snjóa.
  • Þjálfaðu líka í myrkri eða rigningu til að venja nemann við rétta notkun ljósa s.s. þegar ökutæki mætast.
  • Miðaðu hraðann alltaf við aðstæður og umfram allt ekki fara yfir leyfðan hámarkshraða.
  • Hafðu það að markmiði að æfa nemann við eins fjölbreyttar aðstæður og hægt er.
  • Vertu viðbúin(n) og opin(n) fyrir því að læra eitthvað nýtt um umferðina af nemanum því hann er nýkominn úr námi en mörg ár eru síðan þú varst í ökunámi.
  • Notaðu augnspegil í hægra neðra horni framrúðu til að fylgjast með nemanum. Augnhreyfingar segja þér hvort hann hafi tekið eftir aðsteðjandi hættum eða ekki.
  • Notaðu auka baksýnisspegil til að fylgjast með umferð fyrir aftan.
  • Til að vera viðbúin(n) að grípa inn í aksturinn þarftu að vera vel á verði og fylgjast náið með allri umferð sem er í nánd við bílinn og ætlunum ökunemans.
  • Forðastu neikvæðar athugasemdir, styrktu frekar það jákvæða sem ökunemi gerir.
  • Þú hefur ekki hemlafetla hjá þér eins og ökukennarinn. Ákveddu því fyrirfram með nemanum markviss fyrirmæli um neyðarstöðvun eða neyðarviðbrögð.
  • Hafðu samband við ökukennarann ef illa gengur eða aksturinn er kominn í sjálfheldu.