Ökulag
Komdu að keyra!



Ökukennarinn
Hildur Guðjónsdóttir
Ég legg mig fram um að gera ökunámið eins ánægjulegt, þægilegt og einfalt og kostur er. Ég lofa faglegri kennslu, fullt af þolinmæði og fjölbreyttum kennsluaðferðum sem gagnast ólíkum ökunemum.
- Útskrifaðist sem ökukennari frá EHÍ vorið 2024
- Kennari með leik-, grunn- og framhaldsskólaréttindi frá HÍ
- Hópstjóri hjá Samgöngustofu 2017-2022
- Fræðslustjóri hjá Hópbílum 2014-2017
- Deildarfulltrúi hjá Strætó 2012-2014
- Aðstoðarskólastjóri Grunnskólans á Hólmavík 2010-2012
Kennslubílar
Hjá Ökulagi fer ökunámið fram á annað hvort sjálfskiptum eða beinskiptum bíl. Þú getur líka farið blandaða leið og lært á báðar gerðir.
VW Golf
Árgerð 2021
Beinskiptur
KIA Sportage
Árgerð 2015
Sjálfskiptur
Rétt er að hafa í huga að þau sem taka verklegt ökupróf á sjálfskiptan bíl öðlast bara réttindi til að keyra sjálfskiptan bíl. Þau sem taka verklega prófið á beinskiptan bíl geta ekið báðum gerðum. Þitt er valið!


Verðskrá ökunáms
Hér fyrir neðan er verð fyrir stakan ökutíma og akstursmat hjá Ökulagi.
Ef þú ert að velta fyrir þér heildarkostnaði ökunáms geturðu kynnt þér meira um það hér.
Einn verklegur ökutími
(45 mínútur)
Akstursmat
Akstursmat á eigin bíl 10.000
Akstursmat á kennslubíl kostar 14.900